|
Könnun
Segðu já ef þú ert að skoða síðuna okkar
já
1 atkvæði
nei
0 atkvæði
Fjöldi atkvæða: 1
|
06.11.2008 22:34:35 / pulsurnar
súkkulaði er gott það er líka flott sara samdi þetta ljóð og er ég algert fljóð
»
15.08.2007 11:21:37 / Sara
Hae!
nuna er eg hotelınu ı ömurlegustu tölvu ı heımı!!!! tad er
ogedslega heıtt herna, veıt ekkı hversu en mıklu heıtara en hja
ykkur.
tımınn lıdur bara mjög hratt her tad eru komnır 5 dagar og eg er
EKKERT brun er buın ad sofa svooo mıkıd! eg er bara med pınu far
en er ad fara ad worka tanıd a eftır og a morgun!) Tetta er ekkı
eıns flott og eg helt, vıd erum alddreı bunar ad fara a ströndına
ad degı tıl. Ströndın her er mjög sjabbı. tad er lıka langt ad
labba!
vıd erum bunar ad labba mıkıd a kvöldın og skoda ı budır og
svona. eg og arna erum biunar ad fınna ogo flott gleraugu (alvöru)
erum ad mana okkur i ad kaupa eda ekkı....
Ja. her er gata sem HEITIR barstreet!
eg veıt ad tetta er lame blogg i lame tölvu kemst ekkı eınusınnı
a msn!!!
eg er svoo sveıtt!!!
elska ykkur alle sammen
»
26.04.2006 21:14:05 / Inga
Pulsu síðan okkar tók á móti mér, svo brún og fín. Ég var farin
að sakna hennar voða mikið og býst við að hún sé mjög einmanna, en
maður getur ekki fengið allt, nú erum við báðar pulsurnar komnar
með minn sirkus, sem ég er ekki alveg að skilja...og held að ég
verði ekki dugleg að nota þar sem ég nota www.inga.bloggar.is og líður mér
ágætlega þar...
Núna ætla ég að fara niður að fá mér BJÓR!!!! (vá hvað mig
langaði alltíeinu í bjór)
adios amigos
»
24.04.2006 19:49:06 / Sara
ég er komin með minn sirkus http://sb.minnsirkus.is
»
19.04.2006 11:56:00 / Sara
»
15.04.2006 13:46:41 / Inga
»
11.04.2006 10:47:44 / Sara
Helló  Já þá má segja að allt sé að fæðast, er ekki ennþá búin að
kaupa miðann út en það gerist í þessari viku ef ég þrýsti nógu
mikið  Ég er bara í páskafríi og er að fara að læra en ákvað að
blogga pínu fyrst  Ég er engin blogg master eins og flestir hafa
tekið eftir það er að segja ef e-h les bloggin mín... en já ég er
akki búin að fé neitt páka egg ennþá  vonandi fæ ég bráðum  Svo
eru prófin að fara að skella á... á ca 7 skóla daga eftir... ég er
búin eftir einmitt mánuð i prófum, þ´ælum aðeins í þessu... haðiði
það got í páska fríinu bæjó spæjó
»
10.04.2006 21:02:57 / Inga
Eiginmaður minn og ég höfum aldrei íhugað skilnað.......morð
stundum........en aldrei skilnað. -Joyce Brothers
»
09.04.2006 15:39:52 / Inga
Sælt verið fólkið. Það er lítið jafnt mikið að frétta..helstu
fréttir eru að ég er búin að djamma 3 daga í röð! og það er búið að
vera ógeðslega gaman. Fór með Jenni og kærastanum hennar ásamt 4
vinum hans á stað sem heitir Tunneln (www.tunneln.com) geggjaður
staður og ég dansaði af mér þennan litla rass sem ég er með. Og
settist bara einu sinni niður því ég var að drepast í löppunum!
Fékk mér bara að drekka í staðinn
Við byrjuðum kvöldið heima hjá Erik(í malmö) og tókum svo leigara
inní bæ. Ég náði að skemmta 3 köllum með því að fljúga
næstum því á
hausinn inná einum bar á Stortorginu þegar ég ætlaði að flýta
mér að pissa, svo voru þeir að gera grín að mér og stóðu
alltaf upp þegar ég labbaði fram hjá og ætluðu að fylgja mér
og halda í mig og e-h...voða misheppnað og fyndið.
Einar er hérna núna, hann er reyndar e-h lasinn þannig að hann er
ekki búin að gera mikið. Og í tilefni komu hans þá sé ég líka hinn
bróður minn hann Finn sem er alltaf að gera e-h og maður sér hann
aldrei!
Páskaegg eftir vikur...vúhú!!! ég dansaði fyrir plássi í gær
Fyrsta fríið mitt sem ég ætla bara að vera heima og það er
eiginlega bara pínu þægjó. þarf líka að klára hellings skóladrasl
og svona
Jæja, ég ætla að drífa mig að ná í hjólið útá lestó áður en það
byrjar aftur að rigna..
Adios!
»
01.04.2006 20:28:39 / Inga
Í tilefni dagsins fór ég að hugsa um þegar það var brotist inní
bílinn okkar fyrir svona 10 árum. Brotnar rúður á okkar bíl og á
bílnum hjá nágrannanum, engu stolið hjá okkur en einhverju hjá
grannanum. Og ég sem 8 ára trítla alveg í sjokki og rosa hrædd því
það höfðu verið bófar í götunni minni. Sagði öllum í bekknum en
enginn trúði mér! Svona getur 1.apríl líka gabbað mann, enginn
trúir neinu....
...nema ég.! Ég sat hérna uppi áðan og pabbi kom upp og spurði
hvort ég hafði nokkuð séð brottgaltarungana undir tröppunum útí
garði, 5 litlir ungar og ógeðslega sætir! Ég var þá nýbúin að
jappla á peru og pabbi sagði mér að ég gæti nú gefið þeim
restina...Og þetta fannst mér svo spennandi að ég hljóp niður á
meðan ég var æst í því að vita HVAR undir tröppunni, en ég fékk
ekkert svar. Svo var ég komin út og var byrjuð að leita þegar ég sá
glottið á pabba og það nákvæmlega sem ég hugsaði var
"ANDSKOTINN"!!!!! hehe
Svo leið og beið, ég bakaði Muffins að hætti langömmu rosa
gott! Svo kom mamma heim úr vinnunni og við vorum öll 3 inní
eldhúsi og mamma að bragða á kökunum mínum og þá segir pabbi "Þú
varst ekki búin að sjá broddgaltarungana Þóra!" (þá var byrjað að
rigna) og mamma alveg jafn spennt og ég, og ég sagði henni að ég
ætlaði að sýna henni. Þá fór hún að ná í skóna sína og var komin að
hurðinni og sagði "Bíddu, ég ætla að ná í peysuna mína" og svo kom
hún AFTUR(búin að labba yfir marga þröskulda) og ákvað þá að leita
að gleraugunum sínum svo hún sæi sætu litlu ungana betur og þá var
ég komin með samviskubit! Konan búin að hlaupa útum allt hús til að
undirbúa sig, en við pabbi áttum erfitt með að halda í okkur
hlátrinum..en það tókst þangað til mamma var rétt svo komin útum
dyrnar og ég alveg að vorkenna henni í klessu að standa þarna í
rigningunni og sagði henni hvaða dagur var strax.. EN þetta var
ógeðslega fyndið.!!
Pabbi var líka að segja mér sögu frá því hann var lítill og bjó
á Háaleitisbrautinni og það var allt voða nýtt þarna og vegirnir
ekki tilbúnir þannig að það voru einhvernskonar "klettar" í götunni
hans, og allir lögðu bílunum sínum við endann á klettinum. Svo
hljóp amma til nágrannans og sagði honum að bíllinn hans hefði
runnið útaf klettinum en hann hunsaði þetta alveg. Svo fannst ömmu
frekar skrýtið þegar hún fattaði að hann væri ekkert að kíkja og
fór aftur og ÞÁ fattaði hún hvaða dagur var. Og þetta var sko
enginn lygi þannig að hún þurfti að sannfæra hann um að hún væri
sko ekki að djóka..
Ég ætla nú ekki að hafa þetta lengra, þetta átti meira að segja
ekki að verða svona LANGT!
Bæjó spæjó
»
31.03.2006 19:07:26 / Inga

Óli kom Ætli hann hafi ekki veirð nýbúin að gera
"pæjuna" á þessari mynd.

Bursta og svo fórum við í bíó.

Í lestinni til Malmö á leið á djammið. (fös
17mars)

Íslenska lýðveldið í Malmö.

Þunn á leið til Köben, er að pússla saman kindereggs
kallinum mínum.

Sætur 

Í lestinni til Köben.

Mála sig...

Kíkja á Óla..

oooog brosa 

Bleikur kjóll sem ég mátaði..

Og GRÆNI kjóllinn sem ég keypti (tekið í dag)
ballkjóllinn minn fyrir ballið sem verður 5júní.
»
29.03.2006 16:23:07 / Inga
»
27.03.2006 20:04:48 / Inga
Hæ gæs! Ég er ekkert búin að vera í neinu bloggstuði en ástæðan
fyrir þessu bloggi er að ég á að vera að læra og þá er allt annað
skemmtilegra! taka til - blogga - hvað sem er!
Óli kom hingað fyrir 2 vikum og fór fyrir viku, held nú samt að
flestir viti núna..Hann bókaði miðann á mánudeginum og kom á
þriðjudeginum(daginn eftir, ekki misskilja). Um helgina gerði ég
ekki shit...var bara heima, drulluþreytt eiginlega allann
tímann..hafði bara kózý kvöld með mömmu á laugardaginn og kózý
stund með mér sjálfri og sjónvarpinu á föstudaginn..
Ég fór í skólann í dag og það var allt í lagi með mig. Vaknaði
reyndar alltof seint og þurfti að rjúka út á no time,
fékk bílinn lánaðann - sem betur fer! Ég fór í fyrsta tímann
og svo fórum við Anna, Sara og Emma útí matsal og töluðum um sárin
hennar Emmu(fékk glas í feisið og er öll útí sárum) þangað til
matsalurinn opnaði, um leið og ég fann matarlyktina og ótrúlega
mikið af fólki sem fór inn í einu og e-h..þá byrjaði mér að líða
ótrúlega illa, hefur gerst einu sinni áður og það er eiginlega ekki
hægt að lýsa þessu nákvæmlega, en það er eins og maginn á manni
losni, þvílíkur svimi, ógleði og "kallsvett" þið ættuð að skilja
þetta, ef ég þýði beint yfir er þetta kaldur-sviti. Og á þessum
tímapunkti hugsaði ég BARA UM MIG! ýtti fólki frá sem var fyrir mér
og e-h..og náði sko ekki að feika vellíðan, ég var alveg föl..s.s
skjannahvít í framan(eða svona hálf gul líka) og varirnar
svona blá-hvítar og var frekar dökk í kringum augun..Ég ældi!! e-h
sem ég hef ekki gert í mörg ár(nema pínu fyllerís kanski) og ég
gjörsamlega vissi ekki hvað ég átti að gera, mér leið svoooooo
ILLA!! ég er meiraðsegja búin að stytta söguna fyrir ykkur..svo þið
þurfið ekki að lesa minnstu details..svo beið ég í smá stund þangað
til ég treysti mér til að keyra heim.
Núna eru 2 og hálfur mánuður í útskriftina Dagsetningin gæti
ekki verið betri(eða jú, mér finnst þetta svolítið seint) 12 júní
2006, og ég flutti út 12 júní 2002..akkurat 4 ár! Á morgun
ætlum við Jenni niðrí Malmö að skoða kjóla fyrir ballið flotta sem
verður 5 júní...athuga verð og útlit og svona..hef nefnilega heyrt
og tekið eftir svaka dýrum svona kjólum..
Núna verð ég að fara að hofa á einhvern sakamála þátt um konu
sem er í kúk og kanel fyrir að smyggla einhverju
dópi..spennandi.
Vona að þetta blogg hafi verið nógu gott fyrir ykkur
já...og svo erum við komin yfir á sumartímann hérna, kl er s.s
10 hjá okkur og 8 hjá ykkur..
»
25.03.2006 16:23:38 / Inga
Svo ótrúlega mikið til í þessu!!!!
-Ekki gleyma að
hringja! Það er fátt álíka pirrandi og að vera að bíða við
símann!
-Vertu uppátækjasamur,
komdu henni á óvart.
-Sýndu tillitssemi! Já
ég er pirruð, ekki vera að pirra mig meira!!
URG!!!!!
-Okei þú og tölvan eruð
búin að þekkjast lengi og eigið ykkur sögu, en hvernig væri að
prófa að slökkva á henni öðru hvoru, loka counter strike, msn og
þessu rugli og vera sætur við stelpuna þína? Ég held þú lifir
af...
-Reyndu að eyða allavega
smá tíma á dag með henni einni, og sá tími þarf ekki endilega að
fara í kynlíf!
-Sýndu að þér þykir vænt
um hana, hringja upp úr þurru bara til að heyra í henni, faðmaðu
hana( hmmm elska faðmlög) og svoleiðis litlir hlutir eru
æðislegir..
-Ekki “daðra” við aðrar
stelpur, margar stelpur verða mjög öfundjsúkar og óörruggar ef þú
gerir, og í guðanna bænum, ef stelpa reynir við þig og kærastan er
nálægt, reyndu að sýna hinni stelpunni lítin áhuga og knúsast með
kærustunni í staðin!
-Farðu með henni að
hitta vini hennar ef hún býður þér með og sýnir að hún vill hafa
þig
-Ekki láta hana sjá um
allt, ákveða hvað á að gera og solleiðis.
-Ef þú segist ætla að
gera eitthvað GERÐU ÞAÐ!!! En ef þú getur það ómögulega ekki, LÁTTU
HANA VITA!!!
-Passaðu að henni
leiðist ekki þegar hún er með þér og þínum vinum, það er ekkert
sérstaklega gaman að sitja út í horni á meðan kærastinn situr og
talar við vini sína um eikkvað sem við skiljum ekkert
í...
-Ertu flóttamaður?
Giftur? Hommi? Átt 3 börn og 4ða á leiðinni? Plíííís segðu henni
frá því sem skiptir svona rosalegu máli, annars kemst hún að því
annarsstaðar frá og verður sár...
-Stundum þurfum við smá
þrýsting, en samt ekki of mikin..
-Ekki vera OF
tillitssamur, örrugglega þreytandi til
lengdar..
-Ef þú varst
eitthverntíma með vinkonu hennar, segðu henni það, annars heyrir
hún það frá öðrum!!
-Okei kærasta vinar þíns
leyfir þér það, ekki ég! Sættu þig við
það!!!
-Passaðu að henni
finnist hún skipta máli.
-Ekki segjast elska
hana eftir stutt samband, þá heldur hún annað hvort að þú
sér geðsjúkur ofsóknarbrjálæðingur eða þú meinir það
ekki... en vertu nógu duglegur að segja það við hana ef þú elskar
hana ef ekki segðu henni allavega hvernig þér líður og hvað hún sé
frábær.. stelpur þurfa hrós!!!
-Rakaðu þig reglulega,
sandpappír að nuddast eftir andlitinu á manni er ekki
freistandi...
-KÚRA!!!
»
24.03.2006 21:10:56 / Inga
Ég verð bara að henda inn smá bloggi og segja ykkur að ég sé á
lífi og að mér líður vel! Er frekar þreytt og ef ég sofna ekki
á mig þá er planið að kíkja í partý í stað sem heitir
Lomma(ströndin er þar, held að allir sem lesa þetta hafi farið með
mér þangað)
Er búin að skrifa gestalistann fyrir útskriftina og þarf að
byrja að bjóða öllu þessu fólki(e-h um 50, búin að skrifa 58 en það
eru ekkert allir sem komast) en ef ég ætla að fá einhverja gesti þá
þarf að byrja að bjóða núna!! þannig er það í Svíþjóð...allt planað
svo langt fram í tímann, reyndar eru þetta bara íslendingar sem
koma nema tveir ca...en samt.
Jæja, ég er ekki í miklu blogg-stuði..en ég er allavega á
lífi!
adios
»
Síður: 1 2 3 ... 15
|
|